Fotbolti.net
03.06.25 - 14:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Nökkvi keyptur til Sparta Rotterdam (Staðfest)

Nökkvi keyptur til Sparta Rotterdam (Staðfest)
Canon

Mynd: Sparta Rotterdam

Hollenska félagið Sparta Rotterdam greindi frá því rétt í þessu að Nökkvi Þeyr Þórisson væri genginn í raðir félagsins, en hann er keyptur frá St. Louis City.

Nökkvi var fyrri hluta árs á láni hjá Spörtu og var hollenska félagið með kaupákvæði í lánssamningnum sem það nýtti sér.

Dalvíkingurinn skrifar undir þriggja ára samning í Rotterdam. Samningur hans í St. Louis hefði runnið út í lok árs.
Sparta að kaupa Nökkva Þey
TENGT EFNI

Sparta að kaupa Nökkva Þey

„Að virkja kaupmöguleikann var eitt af fyrstu forgangsatriðunum fyrir þennan sumarglugga," segir Gerard Nijkamp sem er tæknistjóri (technical director) hjá Spörtu. „Lánsdvöl Nökkva gekk mjög vel upp, bæði fyrir okkur og hann. Í okkar samtölum kom fljótt í ljós að Nökkvi naut sín hér og báðir aðilar vildu halda samstarfinu áfram í lengri tíma."

Hér að neðan má nálgast viðtal sem tekið var við Nökkva í kjölfar félagaskiptanna.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.