Son og Sancho gætu farið til Sádi-Arabíu - Zubimendi setur spurningamerki við Arsenal - Ramsdale í viðræðum við West Ham
   þri 03. júní 2025 13:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wilshere líklegastur til að taka við Íslendingaliði
Jack Wilshere.
Jack Wilshere.
Mynd: EPA
Eftir að hafa ekki fengið stjórastarfið hjá Norwich, þá er Jack Wilshere núna líklegastur til að taka við Plymouth.

Plymouth er Íslendingafélag sem féll úr ensku Championship-deildinni á dögunum. Guðlaugur Victor Pálsson. er á meðal leikmanna liðsins.

Wayne Rooney stýrði Plymouth fyrri hluta síðasta tímabils en svo tók Miron Muslic við starfinu.

Það gekk betur við eftir að Muslic tók við en hann hætti nýverið með Plymouth til að taka við Schalke í Þýskalandi.

Núna gæti Wilshere verið að taka við. Hinn 32 ára gamli Wilshere þykir einn efnilegasti þjálfari Englendinga en hann var síðast í þjálfarateymi Norwich og stýrði liðinu til bráðabirgða undir lok síðustu leiktíðar.
Athugasemdir
banner
banner