Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 15:19
Kári Snorrason
Vlahovic á förum frá Juventus
Gekk til liðs við Juventus frá Fiorentina fyrir fjórum árum.
Gekk til liðs við Juventus frá Fiorentina fyrir fjórum árum.
Mynd: EPA
Serbneski framherjinn Dusan Vlahovic mun yfirgefa Juventus í sumar eftir rúmlega fjögurra ára dvöl hjá félaginu. Ítalski blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio greinir frá tíðindunum.

Samningur Serbans við félagið rennur út í lok júní og náði leikmaðurinn og félagið ekki saman um kaup og kjör á nýjum samningi.

Vlahovic, sem er 26 ára, hefur leikið alls 168 leiki fyrir Juventus í öllum keppnum og skorað 68 mörk.

Hann hefur verið orðaður við stór félög á borð við Bayern Munchen, AC Milan og Chelsea.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner