03.07.06 - 12:57
Hafliði Breiðfjörð
Francis Jeffers til Blackburn (Staðfest)

Jeffers í leik með Charlton.

Mynd: Getty Images

Jeffers í leik með Charlton.

Mynd: Getty Images
Blackburn Rovers hafa gengið frá samningum við framherjann Francis Jeffers en hann kemur frítt til félagsins. Jeffers sem er 25 ára gamall fyrrum framherji Everton og Arsenal var leystur undan samningi hjá Charlton í maí. Hann gerir nú tveggja ára samning við Blackburn og félagið á möguleika á því þriðja.
,,Ég ræddi við nokkur félög en eftir að hafa rætt við Mark Hughes var ég ákveðinn," sagði Hughes við vefsíðu Blackburn.
,,Þetta eru spennandi tímar fyrir mér, ég átti nokkur erfið ár en ég efast ekki um að ég geti þetta ennþá. Ef ég fæ sanngjarnt tækifæri þá er ég viss um að ég geti snúið aftur í mitt besta form og komið félaginu áfram. Síðustu dagar hefur verið mikið að gerast, ég get ekki beðið."
Jeffers náði ekki að vinna sér fast sæti í Charlton liðinu undir stjórn Alan Curbishley og átti við meiðsli að stríða. Hann hóf ferilinn hjá Everton og spilaði þar við hlið Hughes áður en hann gekk í raðir Arsenal árið 2001 áður en hann fór í Charlton.