Fotbolti.net
03.07.07 - 10:42
Magnús Már Einarsson

Luis Garcia til Atletico Madrid (Staðfest)

Garcia var kynntur hjá Atletico Madrid í dag.

Garcia var kynntur hjá Atletico Madrid í dag.

Canon

Mynd: Getty Images

Atletico Madrid hefur gengið frá kaupunum á Luis Garcia leikmanni Liverpool og hefur hann skrifað undir þriggja ára samning við spænska félagið.
,,Luis Garcia kemur aftur til Atletico og verður kynntur á þriðjudag klukkan 13:30. Atletico hefur náð samkomulagi við Liverpool um kaup á Luis Garcia sem hefur samþykkt þriggja ára samning. Þegar að leikmaðurinn stenst læknisskoðun verður hann kynntur fyrir fjölmiðlum," segir í yfirlýsingu frá Atletico Madrid.

Þessi fyrrum leikmaður Barcelona var einnig á sínum tíma hjá Atletico Madrid. Hann missti af síðari hluta síðasta tímabils vegna meiðsla en hann mun nú reyna að komast aftur í sitt besta form hjá Atletico og vinna sér aftur sæti í spænska landsliðinu.

Koma Luis Garcia til Atletico Madrid þýðir að aðeins meiri líkur er á að Fernando Torres komi til Liverpool en talið er að hann sé á Englandi í viðræðum við Liverpool.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.