Fotbolti.net
03.07.07 - 10:45
Magnús Már Einarsson

Geremi til Newcastle (Staðfest)

Geremi til Newcastle (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle hefur fengið Kamerúnann fjölhæfa Geremi en hann hefur náð samningum við liðið, staðiðst læknisskoðun og á einungis eftir að fá atvinnuleyfi endurnýjað.
Geremi sem er 28 ára getur spilað í hægri bakverði og allsstaðar á miðjunni en nokkur lið höfðu áhuga honum.

Sam Allardyce stjóri Newcastle hefur þegar fengið Joey Barton, Mark Viduka og David Rozehnal í sumar.

Allardyce fór ásamt lærisveinum sínum til Austurríkis í dag í æfingaferð og Geremi mun mæta þangað þegar að búið verður að ganga frá því að hann fái atvinnuleyfi.

Geremi hefur verið hjá Chelsea síðan 2003 og skorað fjögur mörk í 72 leikjum. Hann var í láni hjá Middlesbrough frá Real Madrid tímabilið 2002-2003 en hann hefur alls leikið 60 landsleiki fyrir Kamerún á ferlinum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.