03.07.07 - 14:05
Magnús Már Einarsson
Rúrik Gíslason til Viborg (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúrik Gíslason hefur gert þriggja ára samning við danksa úrvalsdeildarfélagið Viborg en frá þessu er greint á heimasíðu félagsins í dag.
Rúrik sem er 19 ára gamall varð samningslaus frá Charlton Athletic í sumar en hann hefur verið hjá enska félaginu undanfarin tvö ár og leikið þar með vara og unglingaliði félagsins auk þess sem hann hefur áður verið í 17 manna hópi fyrir leiki í ensku úrvalsdeildinni.
Mörg lið föluðust eftir kröftum Rúriks og fór þessi U-21 árs landsliðsmaður meðal annars á reynslu til Djurgarden, Stabæk og Helsingborg.
,,Fótboltalega séð vakti Rúrik mikla athygli í síðustu viku þegar hann æfði með Viborg. Við sjáum fyrir okkur að aðrir munu njóta hæfileika hans næstu þrjú árin í hinni grænu treyju Viborg FF," sagði Morten Jensen hjá Viborg.
,,Framtíðin lítur ótrúlega spennandi út. Fyrir Rúrik, en svo sannalega einnig fyrir Viborg FF, þar sem við höfum fengið inn í hópinn leikmann með mjög mikla hæfileika. Hann á eftir að setja mikla pressu og auka til muna samkeppni um stöður í liðinu," sagði Jensen.
Viborg endaði í níunda sæti í dönsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili sem lauk í lok maí en næsta tímabil hefst 18.júlí næstkomandi.

Heimild: Heimasíða Viborg