Fotbolti.net
03.07.07 - 19:57
Magnús Már Einarsson

Ziegler til Sampdoria (Staðfest)

Ziegler til Sampdoria (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið hefur keypt miðjumanninn Reto Ziegler frá Tottenham en hann hefur verið í láni hjá félaginu á láni síðan í janúar.
Þessi 21 árs gamli Svisslendingur kom til Tottenham í ágúst árið 2004 en fór síðar til Wigan og Hamburg SV í Þýskalandi á láni til að fá reynslu.

Tottenham hefur núna leyft Ziegler að fara enda hefur liðið verið að versla inn leikmenn í sumar.

Tottenham hefur fengið Darren Bent frá Charlton á 16,5 milljónir punda og þá hefur félagið krækt í vinstri bakvörðinn efnilega Gareth Bale frá Southampton.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.