Fotbolti.net
03.07.07 - 15:31
Arnar Geir Halldórsson

WBA kaupir Beattie frá Celtic (Staðfest)

Craig Beattie skallar að marki í leik með Celtic

Craig Beattie skallar að marki í leik með Celtic

Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hafa gengið frá kaupum á Craig Beattie, sóknarmanni sem kemur frá Celtic í Skotlandi. Kaupverðið er 1,25 milljónir punda og er samningurinn til þriggja ára.
Tony Mowbray stjóri WBA hefur miklar mætur á kappanum sem er 23 ára en Mowbray reyndi einnig að fá hann til liðs við sig fyrir rúmu ári en þá sem stjóri Hibernian í Skotlandi.

,,Craig mun veita okkur það sem okkur vantaði á síðasta tímabili. Hann er ungur og getur enn bætt sig. Hann hefur reynslu úr Meistaradeild Evrópu og af landsleikjum." sagði Mowbray.

Verðmiðinn á Beattie gæti hækkað um hálfa milljón punda en það eru árangurstengdar greiðslur.

,,Hann notar hraða sinn og kraft mjög vel og er klókur að stinga sér innfyrir vörn andstæðinganna. Hann spilar alltaf í aftasta manni."

Beattie var á yngri árum látinn fara frá Glasgow Rangers þar sem hann þótti ekki nógu góður. Hann á að baki fjóra landsleiki fyrir A-lið Skota og hefur skorað í þeim eitt mark. Leikmaðurinn skoraði 13 mörk í 50 leikjum fyrir skosku risana.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.