03.07.07 - 18:41
Magnús Valur Böðvarsson
Wolves kaupir Darren Ward (staðfest)

Úlfarnir fá liðsstyrk.

Mynd: Getty Images

Úlfarnir fá liðsstyrk.

Mynd: Getty Images
Úlfarnir hafa fest á hinum 28 ára gamla varnarmanni Crystal Palace, Darren Ward fyrir óuppgefna upphæð.
Darren Ward sem Crystal Palace fékk frá Millwall fyrir þremur árum var ekki í náðinni hjá Peter Taylor stjóra Palace á síðasta tímabili og var augljóslega ekki í plönum hans fyrir komandi tímabil og hefur hann því verið seldur til Wolves.
Ward skrifaði undir þriggja ára samning við Úlfana en hann segist hlakka mikið til að fara spila aftur.
Ward skrifaði undir þriggja ára samning við Úlfana en hann segist hlakka mikið til að fara spila aftur.
Heimild: Sky sports
