Fotbolti.net
03.07.19 - 23:16
Helga Katrín Jónsdóttir

Berglind Björg: Leiðinlegt að taka ekki 3 stig

Auglýsing
Berglind Björg: Leiðinlegt að taka ekki 3 stig
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Toppslagnum á Hlíðarenda lauk með 2-2 jafntefli og var Berglind Björg virkilega sátt með spilamennsku Breiðabliks.
"Þetta var góður leikur af okkar hálfu, mér fannst við spila frábærlega og leiðinlegt að hafa ekki tekið 3 stig."



Berglind var þó eftir leik nokkuð sátt með stigið.



"Þetta var orðin þvílík barátta í lokin, bæði lið orðin þreytt en samt að reyna að sækja 3 stig. Ég held að 1 stig á hvort lið sé bara sanngjarnt."



Berglind Björg skoraði fyrra mark Breiðabliks í kvöld sem skipti öllu máli fyrir gestina.



"Þetta mark var mjög mikilvægt, hefði verið skemmtilegra ef það hefði komið aðeins fyrr. Þá sýndum við að við vorum inni í þessum leik allan tímann svo það var mikilvægt að skora þarna."



Markmiðið í seinni hálfleik var bara að halda áfram eftir ágætis lokakafla í fyrri hálfleik.



"Við enduðum fyrri hálfleikinn frábærlega og mikill kraftur í okkur svo við ákváðum bara að byggja ofan á það."



Berglind er mjög sátt við byrjunina á mótinu enda búnar að gera eitt jafntefli og vinna rest. Miðað við hvernig þessi lið eru að spila er spurning hvort að deildin ráðist í seinni leik liðanna í september.



"Það er erfitt að segja, öll hin liðin geta strítt svo það kemur bara í ljós í síðasta leiknum held ég."





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.