Fotbolti.net
10.07.26 - 10:38
Kári Snorrason

Elías Már með slitið krossband

Frá út tímabilið.

Frá út tímabilið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elías Már Ómarsson, leikmaður Víkings, er með slitið krossband og mun ekki spila meira á tímabilinu. Þetta staðfestir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, í samtali við Fótbolta.net.

Elías fór sárþjáður eftir að hann festist í grasinu á Víkingsvelli gegn Györ í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildarinnar á þriðjudag.
Óvíst með Elías og Vatnhamar tognaður - „Reikna ekki með að fá einhvern inn“
TENGT EFNI

Óvíst með Elías og Vatnhamar tognaður - „Reikna ekki með að fá einhvern inn“

Framherjinn er markahæstur í Bestu deildinni ásamt Aroni Sigurðarsyni leikmanni KR, en þeir hafa báðir skorað tólf mörk.

Í viðtali eftir leik á þriðjudag skaut Sölvi Geir á Reykjavíkurborg og sagði að honum þætti ekki boðlegt að liðið byði upp á grasið sem er á Víkingsvelli.

Ísfold Marý Sigtryggsdóttir, leikmaður kvennaliðs Víkings, sleit krossband á vellinum í síðasta mánuði og þá lenti liðsfélagi hennar, Shaina Ashouri, í því sama í september í fyrra.
Festist í grasinu á Víkingsvelli.

Festist í grasinu á Víkingsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.