Fotbolti.net
10.07.26 - 23:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skrifar frá: Njarðvík

Hetjan í níu marka veislu - „Ég veit ekki hvað gerðist"

Auglýsing
Eiður Aron Sigurbjörnsson.

Eiður Aron Sigurbjörnsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
„Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja, þetta var bara stemning," sagði Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði Njarðvíkur, eftir ótrúlegan 5-4 sigur gegn Grindavík í Lengjudeildinni.

„Ég veit ekki hvað gerðist. Þetta virtist bara vera þannig að þegar boltinn var kominn inn á teig hjá öðru hvoru liðinu að þá fór boltinn inn. Þetta var mjög spes."
Lestu um leikinn: Njarðvík 5 - 4 Grindavík
Eiður Aron skoraði markið sem skildi liðin að.

„Ég er búinn að vera eftir marki með Njarðvík og það kom á helvíti góðum tíma."

Það hefði verið auðveldara að giska á það að þessi leikur myndi enda 0-0 þar sem þetta voru tvö bestu varnarlið deildarinnar fyrir leikinn. Geturðu eitthvað útskýrt þetta?

„Bara engan veginn. Það pirrar mig ekkert eðlilega mikið að við fáum á okkur fjögur mörk í dag. Ég get rétt ímyndað mér hvernig mér myndi líða ef við hefðum tapað. Það er erfitt að setja einhvern punkt á hvað fór úrskeiðis varnarlega en stigin þrjú skipta máli."

Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.