Fotbolti.net
10.07.26 - 23:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skrifar frá: Njarðvík

Ray eftir ótrúlegan leik: Einkennir ekki liðið

Auglýsing
Ray Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur.

Ray Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
„Þetta var ótrúlegur leikur," sagði Ray Anthony Jónsson, þjálfari Grindavíkur, eftir 5-4 tap gegn Njarðvík í Lengjudeildinni.

„Við höfum verið í basli með að skora mörk en þau komu heldur betur núna. Við fengum hins vegar fimm mörk á okkur sem einkennir ekki liðið."
Lestu um leikinn: Njarðvík 5 - 4 Grindavík
„Það hefur verið frábært að vera upp í stúku að horfa á þetta en leiðinlegt að tapa þessum leik."

Fyrir leikinn voru þetta tvö bestu varnarlið deildarinnar. Hvað gerist eiginlega inn á vellinum í kvöld?

„Ég bara hreinlega veit það ekki. Það lak allt inn. Hvort sem varnarleikurinn hafi verið slæmur hjá báðum liðum, þá var það sóknarleikurinn sem var fyrir hendi í dag. Við gerðum vel í að sækja en gleymum varnarleiknum okkar. Ég þarf að horfa á leikinn aftur," sagði Ray.

„Ég er Grindavíkurmegin og mér hefði fundist sanngjarnt ef þetta hefði bara endað 5-5. Við náðum bara ekki að skora fimmta markið."

Grindvíkingar settu pressu í lokin en það dugði ekki til að jafna metin. Damir Muminovic var meðal annars kominn í fremstu víglínu. „Já, mér skilst að hann sé gamall senter. Ég segi svona. Við þurftum að fækka í vörninni. Það breytti engu hvort við hefðum tapað 6-4 eða 5-4. Við vorum að reyna að sækja þetta jöfnunarmark."

Ray segist geta tekið helling úr leiknum en allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.