Fotbolti.net
10.07.26 - 23:17
Ívan Guðjón Baldursson

Luis de la Fuente: Frakkar eru alveg jafn hræddir

Luis de la Fuente: Frakkar eru alveg jafn hræddir
Canon

Mynd: EPA

Luis de la Fuente, landsliðsþjálfari Spánverja, svaraði spurningum eftir 2-1 sigur gegn Belgíu í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins fyrr í kvöld.
Mikel Merino kom inn af bekknum undir lokin þegar staðan var 1-1 og skoraði sigurmarkið skömmu síðar, alveg eins og í síðustu umferð gegn Portúgal.

Þjálfarinn hrósaði Merino í hástert fyrir sitt framlag og var svo spurður hvort hans menn séu hræddir við að mæta ógnarsterku landsliði Frakklands, sem er að reyna að komast í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í þriðja sinn í röð.

„Ég er viss um að Frakkar séu alveg jafn hræddir og við. Ekki gleyma að við höfum unnið þá í síðustu tveimur innbyrðisviðureignum," svaraði De la Fuente. „Þetta eru tvö stórkostleg lið að mætast."

Spánverjar slógu Frakka úr leik í undanúrslitum Evrópumótsins 2024 og í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar í fyrra. Lokatölur 2-1 á EM og 5-4 í Þjóðadeildinni.

Yamal: Frakkar ættu að vera hræddir við okkur
TENGT EFNI

Yamal: Frakkar ættu að vera hræddir við okkur

Luis de la Fuente: Frakkar eru alveg jafn hræddir
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.