Fotbolti.net
10.07.26 - 23:04
Ívan Guðjón Baldursson

Yamal: Frakkar ættu að vera hræddir við okkur

Yamal: Frakkar ættu að vera hræddir við okkur
Canon

Mynd: EPA

Kantmaðurinn Lamine Yamal, sem fagnar 19 ára afmæli á mánudaginn, svaraði spurningum eftir 2-1 sigur Spánverja gegn Belgíu í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.
Evrópumeistarar Spánar mæta geysisterku liði Frakklands í undanúrslitunum, en Yamal og félagar hafa haft betur í síðustu tveimur innbyrðisviðureignum þjóðanna.

„Ef Frakkar þurfa að óttast einhverja andstæðinga, þá eru það við. Við slógum þá út síðast," sagði Yamal. „Ég er svo ánægður með að vera komnir í undanúrslitin, þetta var erfiður leikur í dag. Ég var alltaf með nokkra leikmenn á mér en við vorum alltaf með einhvern lausan leikmann og nýttum okkur það.

„Við erum ekki hræddir við Frakkland, við unnum þá í síðustu tvö skipti. Mér líður mjög vel bæði andlega og líkamlega. Ég er mjög spenntur."


Yamal er aðeins búinn að skora eitt mark í sex leikjum á heimsmeistaramótinu án þess að leggja upp. Hann segir það ekki skipta neinu máli.

„Ég skoraði bara eitt mark þegar við unnum Evrópumótið. Ef við vinnum HM þá mun enginn muna eftir mörkunum mínum. Það eina sem skiptir máli er að vinna, það er markmiðið okkar. Það eina sem ég vil er að vinna HM, mér er sama hver verður markahæstur.

„Eins og ég sé þetta þá eru tveir möguleikar gegn Frakklandi. Annað hvort komast þeir í þriðja úrslitaleik HM í röð eða við leggjum þá af velli í þriðja skiptið í röð."


Spánn vann 2-1 gegn Frakklandi í undanúrslitum Evrópumótsins 2024 og kom eina mark Yamal í mótinu í þeim leik. Spánverjar unnu svo 5-4 í afar fjörugum leik í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar í fyrra, þar sem Yamal skoraði tvennu.

Yamal stóð sig vel á EM 2024 þó hann hafi aðeins verið 16 ára gamall þegar mótið var flautað á. Hann skoraði eitt mark og gaf fjórar stoðsendingar er Spánverjar stóðu uppi sem sigurvegarar í þriðja sinn á síðustu fimm Evrópumótum.

Frakkar urðu heimsmeistarar 2018 en töpuðu úrslitaleiknum 2022 eftir vítaspyrnukeppni gegn Argentínu. Þeir töpuðu einnig úrslitaleiknum 2006 og úrslitaleik Evrópumótsins 2016.
Yamal: Frakkar ættu að vera hræddir við okkur
Canon

Mynd: EPA

Yamal: Frakkar ættu að vera hræddir við okkur
Canon

Mynd: EPA

Yamal: Frakkar ættu að vera hræddir við okkur
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.