Fotbolti.net
10.07.26 - 22:32
Magnús Atlason

Völlurinn til vandræða: „Virkilega erfitt“

Auglýsing
Völlurinn til vandræða: „Virkilega erfitt“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
ÍR og Þróttur gerðu 1-1 jafntefli í Breiðholti. Þróttarar fóru oft illa með góðar stöður en þeir voru manni fleiri í rúmar 70 mínútur og ÍR náði að koma til baka. Fótbolti.net náði tali af Sigurvini Ólafssyni þjálfara Þróttar eftir leik.
"Augljóslega ekki nógu ánægður að fá ekki 3 stig, komnir yfir og manni fleiri"

Þróttarar voru bitlausir fram á við og náðu ekki að nýta sér yfirtöluna.

"Það vantaði svosem ekkert þarna fram á við annað en betri völl. Okkar spil hangir með því að láta boltann ganga og það var virkilega erfitt. Sérstaklega í seinni part fyrri hálfleiks, þá gerðum við lítið en við töluðum aðeins saman í hálfleik og gáfum okkur betri tíma í að byggja upp sóknirnar og við gerðum það bara mjög vel, markið unnið úr frábærri sókn."

Þróttur hefur ekki unnið leik í síðastliðnum þremur leikjum og Sigurður Egill Lárusson hefur einmitt ekki spilað þá leiki vegna meiðsla. Aðspurður hvort að hann sé svona mikilvægur þessu liði:

"Hann er alveg mikilvægur þessu liði en hann er ekki eina útskýringin á því að við höfum ekki náð þessum sigri. Erum manni færri í síðasta leik í álíka tíma og við vorum manni fleiri í þessum leik og þá vorum við að pakka Vestra saman en náðum ekki að skora sigurmarkið."

Félagsskiptaglugginn opnar 16. júlí. Sér Venni fram á að fá nýja menn í Laugardalinn?

"Ég á ekkert sérstaklega von á því við erum mjög vel mannaðir"

Viðtalið má horfa á í spilaranum hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.