Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 03. júlí 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hazard tekur við treyjunúmerinu af Götze
Thorgan Hazard.
Thorgan Hazard.
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund hefur tilkynnt það að Thorgan Hazard muni klæðast treyju númer tíu hjá félaginu á næstu leiktíð.

Hazard tekur við númerinu af Mario Götze sem róar á önnur mið í sumar.

Samningur Götze hjá Dortmund var ekki framlengdur. Ferill hans byrjaði frábærlega hjá Borussia Dortmund en hann hefur verið á niðurleið alveg frá því að hann gekk í raðir Bayern München árið 2013. Götze kom aftur til Dortmund fyrir fjórum árum, en það hefur ekki gengið sem skyldi hjá honum.

Á þessu tímabili kom 28 ára gamli sóknarsinnaði miðjumaðurinn við sögu í 15 deildarleikjum með Dortmund.

Thorgan Hazard er yngri bróðir Eden Hazard. Hann kom til Dortmund frá Borussia Mönchengladbach og skoraði sjö mörk í 43 leikjum á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu.


Athugasemdir
banner
banner