16.09.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Tuchel sér eftir að hafa ekki borðað grasið

Tuchel sér eftir að hafa ekki gætt sér á hágæða grasi í Mexíkó

Mynd: EPA

Jordan Henderson handleggsbrotnaði eftir leik og var það augnablikið sem Tuchel vissi að þetta væri hans lið

Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, segir sína mestu eftirsjá frá HM í sumar vera að hafa ekki borðað smá gras á Asteka-vellinum í Mexíkó.
Tuchel ræddi við Daniel Sturridge, fyrrum leikmann enska landsliðsins, í viðtali á heimasíðu enska fótboltasambandsins og rifjaði meðal annars upp 3-2 sigurinn á Mexíkó í 16-liða úrslitum HM.
England lék manni færri en náði samt að knýja fram sigur á Asteka-vellinum og Tuchel segir augnablikið eftir leikinn standa upp úr á mótinu.
„Ég sendi vini mínum skilaboð eftir leikinn og sagði honum að ég sæi eftir því að hafa ekki étið smá gras, bara til þess að eiga eitthvað af þessu augnabliki inni í mér að eilífu. Þannig leið mér. Þetta var þannig stund,“ sagði Tuchel.
Eftir leikinn slasaðist Jordan Henderson í fögnuðinum þegar hann stökk yfir skilti, datt illa og handleggsbrotnaði. Tuchel segir viðbrögð leikmanna hafa sýnt hversu samheldinn hópurinn væri.
„Hver einasti leikmaður stöðvaði fögnuðinn og þeir mynduðu skjöld í kringum Jordan. Enginn fór neitt og allir sýndu honum samúð. Þetta var mjög sérstakt.“
„Þetta skapaði sterka tengingu innan hópsins og nú líður mér eins og þetta séu mínir leikmenn. Maður deilir bæði árangrinum og sársaukafullu augnablikunum og þannig myndast tengsl,“ sagði hann.
Næst tekur A-deild Þjóðadeildarinnar við áður en undankeppni EM hefst. England er ein af fimm gestgjafaþjóðum mótsins en þarf engu að síður að fara í undankeppni.
Tuchel segist spenntur fyrir framhaldinu og telur HM hafa lagt góðan grunn.
„Við fengum tíu leiki í Bandaríkjunum, unnum átta, gerðum eitt jafntefli og töpuðum einum sársaukafullum leik. Það er eitthvað sem við getum byggt ofan á.“
„Við höfum fullan rétt á því að bera höfuðið hátt og fara hugrakkir og jákvæðir inn í næstu áskoranir. Við eigum fjóra leiki framundan í Þjóðadeildinni og þar liggur einbeitingin núna,“ sagði Tuchel.