Fotbolti.net
15.09.26 - 22:35
Kári Snorrason

„Engin þynnka í okkur“

Auglýsing
„Á það til að vera lunkinn í boxinu.“

„Á það til að vera lunkinn í boxinu.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er engin þynnka í okkur. Það var gaman um helgina og svo kemur ný vika,“ sagði nýkrýndi bikarmeistarinn Ásgeir Helgi Orrason eftir 3-1 sigur Breiðabliks á Fram í Bestu deildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Fram 1 - 3 Breiðablik
„Þetta var ekkert skemmtilegasti fyrri hálfleikur í heimi. Við mættum með ákveðna taktík og gerðum það almennilega. Við gáfum fá færi á okkur og vernduðum hjartað vel. Svo sækjum við á þá og skorum á þá tvö mjög góð mörk,“ sagði Ásgeir.

Framarar minnkuðu muninn snemma í seinni hálfleik. Stundarfjórðungi síðar skoraði Ásgeir þriðja mark Breiðabliks og sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, í viðtali eftir leik það hafa tekið trúna úr liðinu.

„Ég á það til að vera lunkinn í boxinu. Ég fékk boltann í mig gegn KA í síðasta deildarleik. Það er gott að ná inn marki - alvöru stemning.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.