16.09.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson
„Reiðist stundum út í þá en það er af því ég vil að þeir nái árangri“

Alexis Mac Allister

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Alexis Mac Allister

Mynd: EPA
Argentínski miðjumaðurinn Alexis Mac Allister hefur byrjað tímabilið ágætlega og skoraði auk þess sem hann lagði upp í 3-1 sigri Liverpool á Tottenham í enska deildabikarnum í gær.

TENGT EFNI
Einkunnir úr deildabikarnum: Gyökeres skelfilegur - Þrír leikmenn Liverpool fá 8
Mac Allister hefur verið inn og út úr byrjunarliðinu á tímabilinu og deilt sætinu með Ryan Gravenberch.
Hann skoraði annað mark sitt á tímabilinu í gær og kórónaði frammistöðuna með stoðsendingu á Cody Gakpo.
„Við spiluðum gegn mjög sterku liði sem veit hvernig á að halda boltanum.“
„Ég elska að koma mér inn í teiginn og skora. Það er mjög mikilvægt fyrir sjálfstraustið að gera það og vinna leikinn, en við verðum líka að muna að þetta var bara einn leikur.“
„Mér líður mjög vel og finn fyrir mikilli ást frá stuðningsmönnunum, sem skiptir mig miklu máli,“ sagði Mac Allister.
Margir ungir leikmenn fengu tækifæri og Mac Allister vonast til þess að þeir nái að standa undir þeim væntingum sem gerðar eru til þeirra.
„Ungu leikmennirnir sýna á hverjum degi á æfingum að þeir vilja vera hér. Þeir eiga þetta skilið og ég fylgist mjög vel með þeim. Stundum verð ég reiður út í þá, en það er bara af því að ég vil að þeir nái árangri.“
„Þeir eiga eftir að verða ótrúlega mikilvægir fyrir okkur á þessu tímabili,“ sagði Mac Allister.