Fotbolti.net
16.09.26 - 09:05
Elvar Geir Magnússon

Bestu liðin leika til úrslita í Laugardalnum um helgina

Úrslitastund á Laugardalsvelli.

Úrslitastund á Laugardalsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það verða tveir úrslitaleikir á Laugardalsvelli um helgina. Undir flóðljósunum á föstudagskvöld verður leikið um Gatorade bikar Fótbolta.net og á laugardeginum er það 100 milljóna króna leikurinn um sæti í Bestu deildinni.
Úrslitaleikur Hauka og Selfoss færður - Spilað undir flóðljósunum á föstudag
TENGT EFNI

Úrslitaleikur Hauka og Selfoss færður - Spilað undir flóðljósunum á föstudag

Selfoss og Haukar mætast í úrslitaleiknum í bikarkeppni neðri deilda klukkan 19 á föstudag. Það má búast við mjög góðri stemningu enda hafa stuðningsmenn beggja liða ástæðu til að fagna góðu sumri. Þetta eru tvö efstu lið 2. deildar, Haukar unnu deildina og Selfoss tók annað sætið og bæði leika því í Lengjudeildinni á næsta ári.

Klukkan 16:15 á laugardag er svo úrslitaleikurinn í umspili Lengjudeildarinnar þar sem Þróttur mætir Fylki og ræðst þá hvort liðið fylgir Aftureldingu upp. Þróttur endaði í öðru sæti Lengjudeildarinnar og Fylkir í því þriðja og má því að segja að bestu liðin, fyrir utan Aftureldingu, séu að mætast. Frá því að umspilið var tekið upp hafa bara lið sem hafa endað í fjórða eða fimmta sæti náð að komast upp um deild en nú verður breyting á.

Það er oft sagt að deildarkeppni sé besta leiðin til að sýna styrkleika liða og því óhætt að segja að bestu liðin séu að fara að mætast á þjóðarleikvangnum um helgina.

föstudagur 18. september
Fótbolti.net bikarinn
19:00 Selfoss-Haukar (Laugardalsvöllur)

laugardagur 19. september
Lengjudeild karla - Umspil
16:15 Þróttur R.-Fylkir (Laugardalsvöllur)
Haukar unnu 2. deildina.

Haukar unnu 2. deildina.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.