Fotbolti.net
15.09.26 - 23:10
Brynjar Ingi Erluson

Messi valinn í argentínska landsliðið í síðasta sinn

Lionel Messi

Lionel Messi

Canon

Mynd: EPA

Lionel Messi er í argentínska landsliðshópnum fyrir komandi landsliðsverkefni sem verður hans síðasta með Argentínu, en hópurinn var tilkynntur í kvöld.
Messi, sem er einn besti leikmaður allra tíma, greindi frá því á dögunum að landsliðsskórnir væru komnir upp í hillu.

Það var þó alltaf ljóst að hann yrði kvaddur með stæl og nú styttist í þá stund.

Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, valdi Messi í hópinn fyrir þrjá æfingaleiki í næsta landsleikjaglugga.

Argentína mætir Bólivíu og Búrkína Fasó, en síðasti dans Messi á Monumental-leikvanginum í Buenos Aires verður gegn Benín 6. október.

Það má því búast við gríðarlega tilfinningaþrunginni stund þegar Messi kveður argentínska landsliðið fyrir framan heimamenn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.