Fotbolti.net
15.09.26 - 23:21
Brynjar Ingi Erluson

De Zerbi segir úrslitin ósanngjörn - „Við erum miður okkar“

Roberto De Zerbi

Roberto De Zerbi

Canon

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, segir 3-1 tapið gegn Liverpool á Anfield hafa verið ósanngjarnt, en úrslitin þýða að Tottenham er úr leik í enska deildabikarnum.
Iraola: Þetta er nær þeirri útgáfu sem ég vil sjá
TENGT EFNI

Iraola: Þetta er nær þeirri útgáfu sem ég vil sjá

Liverpool komst í 2-0 en Tottenham fékk sannarlega færin til að skora. Munurinn lá hins vegar í slakri færanýtingu gestanna og stórleik Giorgi Mamardashvili í marki Liverpool.

De Zerbi vill að sínir menn verði ákveðnari og skilvirkari fyrir framan markið.

„Við verðum að skjóta oftar og betur. Við þurfum að vera betri í að klára dauðafærin, en við erum miður okkar yfir úrslitunum, vonsviknir og svekktir.“

„Mér fannst þetta ósanngjarnt en við verðum að sætta okkur við það og vera sterkari en þessi óheppni. Ég er bara að vera heiðarlegur við sjálfan mig og ykkur.“

„Ef þú horfir á þessa fimm eða sex leiki þá sérðu að við höfum ekki verið heppnir. Það á við um Newcastle, Everton, jafnvel Nottingham og svo leikinn í kvöld,“
sagði De Zerbi.

Hvað fór úrskeiðis?

„Það var ýmislegt. Við vörðumst ekki rétt í fyrsta markinu og hefðum átt að vera nær Gakpo í því síðara. En við verðum líka að átta okkur á því hvort við séum á réttri braut eða ekki. Ef þú horfir á síðustu þrjá eða fjóra leiki, fram að 60. mínútu, þá vorum við að gera hlutina rétt.“

De Zerbi hefur engu að síður fulla trú á því að leikmenn liðsins muni sýna hvers þeir eru megnugir.

„Ég hef trú á leikmönnum mínum og þegar þetta smellur saman og við förum að vinna leiki þá munum við fá að njóta þessara gæða.“

„Gæði þessara leikmanna eru ótrúleg. Sjáið Omar Marmoush, Savio, Kudus, Bergvall, Fernandes, Robertson og ekki gleyma Porro. Solanke er líka í toppklassa,“
sagði De Zerbi.
De Zerbi segir úrslitin ósanngjörn - „Við erum miður okkar“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.