Fotbolti.net
16.09.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Subway

England í dag - Man Utd mætir Brighton á Old Trafford

Man Utd fær tækifæri til að komast aftur á sigurbraut í kvöld

Man Utd fær tækifæri til að komast aftur á sigurbraut í kvöld

Canon

Mynd: EPA

Fjórir leikir fara fram í 3. umferð enska deildabikarsins í kvöld.
Everton og Wolves mætast klukkan 18:45 á Hill Dickinson-leikvanginum í Liverpool.

Fleetwood Town tekur á móti Sheffield United en Fleetwood leikur í D-deildinni á meðan Sheffield United er í næstefstu deild.

Frank Lampard og lærisveinar hans þurfa að finna taktinn og fá tækifæri til þess gegn Aston Villa sem hefur sömuleiðis átt erfiða byrjun á tímabilinu. Sá leikur hefst klukkan 19:00.

Á sama tíma tekur Manchester United á móti Brighton á Old Trafford. United hefur aðeins unnið einn leik á tímabilinu, gegn Ipswich, og þarf nauðsynlega á sigri að halda til að koma sér í gang.

Brighton hefur hins vegar verið á ágætis róli, aðeins tapað einum af fyrstu sex leikjum sínum í öllum keppnum og kemur inn í leikinn eftir 5-0 stórsigur á Coventry.

Leikir dagsins:
18:45 Everton - Wolves
18:45 Fleetwood Town - Sheffield Utd
19:00 Coventry - Aston Villa
19:00 Man Utd - Brighton
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.