Fotbolti.net
16.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Bandarísk skyndibitakeðja kaupir nafnaréttinn

Bandarísk skyndibitakeðja kaupir nafnaréttinn
Canon

Mynd: EFL

Bandaríska skyndibitakeðja Jersey's Mike hefur ná samkomulagi við EFL-sambandið á Englandi um nafnaréttinn á EFL-bikarnum þar í landi en það er Daily Mail sem greinir frá.
EFL-bikarinn er bikarkeppni fyrir neðrideildarliðin og hefur lengi gengið undir ýmsum nöfnum. Á árum áður var hann meðal annars kallaður Framrúðubikarinn en síðast hét keppnin Vertu-bikarinn.

Daily Mail greinir nú frá því að bandaríska skyndibitakeðjan Jersey Mike's, sem er þekkt fyrir lokur og rekur um 3.300 staði í Bandaríkjunum og Kanada, sé að kaupa nafnaréttinn á keppninni fyrir fimm milljónir punda.

Þarna er Jersey Mike's að færa sig inn á nýjan markað en fyrirtækið hefur stórar áætlanir um að opna um 400 veitingastaði á Bretlandseyjum.

Sérfræðingar í viðskiptageiranum segja samninginn skýrt merki um að Jersey Mike's ætli sér í harða samkeppni við Subway, sem hefur verið afar fyrirferðarmikið á markaðnum um árabil.

Alls munu sextán úrvalsdeildarlið senda unglinga- og varalið sín í keppnina í ár, þar á meðal Englandsmeistarar Arsenal. Einu félögin sem taka ekki þátt eru Bournemouth, Coventry, Hull og Manchester United.

Jack Wilshere og lærisveinar hans í Luton Town eru ríkjandi meistarar eftir 3-1 sigur á Stockport County, liði Benonýs Breka Andréssonar, í úrslitaleiknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.