Fotbolti.net
15.09.26 - 23:30
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Ítalski bikarinn: Fyrrum liðsfélagar Alberts flugu áfram

Fiorentina vann þriggja marka sigur

Fiorentina vann þriggja marka sigur

Canon

Mynd: EPA

Fiorentina 3 - 0 Pisa
1-0 Mateo Pellegrino ('40 )
2-0 Wilfried Gnonto ('71 )
3-0 Pedro Goncalves ('90 )
Fiorentina, fyrrum félag Alberts Guðmundssonar, tryggði sér örugglega sæti í 16-liða úrslitum ítalska bikarsins með 3-0 sigri á B-deildarliði Pisa í kvöld.

Mateo Pellegrino kom Fiorentina yfir á 40. mínútu. Radu Dragusin átti þá hörkuskot fyrir utan teig sem markvörður Pisa varði, en Pellegrino var fyrstur á frákastið og setti boltann í netið.

Svíinn Alieu Nije sýndi síðan hæfileika sína þegar hann lagði upp annað markið fyrir Wilfried Gnonto. Nije skeiðaði framhjá nokkrum varnarmönnum og inn í teiginn áður en hann lagði boltann út á Gnonto sem kláraði færið.

Nije var sjálfur nálægt því að komast á blað skömmu síðar en skot hans fór framhjá.

Undir lokin innsiglaði annar nýr maður, Pedro Goncalves, 3-0 sigurinn með laglegu skoti fyrir utan teig.

Fiorentina er þar með komið áfram í 16-liða úrslit þar sem liðið mætir Napoli.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.