15.09.26 - 22:51
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir úr deildabikarnum: Gyökeres skelfilegur - Þrír leikmenn Liverpool fá 8

Gyökeres er ekki búinn að vera góður

Mynd: EPA

Mamardashvili átti stórleik í marki Liverpool

Mynd: EPA

Gyökeres er ekki búinn að vera góður

Mynd: EPA
Það voru margir sem áttu gott kvöld í enska deildabikarnum, en aðrir voru afspyrnulélegir og fengu það óþvegið í einkunnagjöfinni.

TENGT EFNI
Enski deildabikarinn: Liverpool sló út Tottenham - 16 ára í aðalhlutverki hjá Arsenal
Independent sér um einkunnirnar úr 3-1 sigri Liverpool á Tottenham.
Alexis Mac Allister, Cody Gakpo og Giorgi Mamardashvili fengu hæstu einkunn, 8. Mamardashvili varði ítrekað frábærlega og átti líklega sinn besta leik fyrir félagið. Mac Allister skoraði og lagði upp en Gakpo var líflegur í sóknarleik heimamanna.
Conor Gallagher skoraði eina mark Tottenham en var engu að síður á meðal slökustu manna leiksins ásamt Marcos Senesi og Rodrigo Bentancur. Allir þrír fengu 4 í einkunn.
Liverpool: Mamardashvili (8), Frimpong (5), Araujo (7), Gomez (6), Kerkez (6), Mac Allister (8), Nyoni (7), Ngumoha (7), McConnell (7), Gakpo (8), Koumas (7).
Varamenn: Jacquet (7), Gravenberch (6), Szoboszlai (7).
Tottenham: Dubravka (6), Gray (5), Adarabioyo (5), Senesi (4), Udogie (5), Bentancur (4), Bergvall (6), Kudus (6), Gallagher (4), Tel (5), Marmoush (6).
Varamenn: Robertson (6), Fernandes (7), Maddison (7), Savio (5).
Max Dowman bar af hjá Arsenal en hinn 16 ára gamli táningur skoraði tvö mörk og sýndi enn og aftur hvers vegna hann er talinn einn efnilegasti leikmaður Englands. Sá virðist svo sannarlega tilbúinn í fleiri mínútur.
Einn leikmaður náði þó alls ekki að sannfæra Mikel Arteta og það var Viktor Gyökeres. Hann fær aðeins 2 í einkunn hjá London Evening Standard, sem segir hann hafa verið nánast áhorfanda í leiknum og langt frá gæðunum sem aðrir leikmenn Arsenal sýndu.
Einkunnir Arsenal gegn Ipswich: Kepa (6), Zubimendi (6), Salmon (7), Gabriel (7), Lewis-Skelly (7), Guimaraes (8), Merino (9), Madueke (8), Dowman (9), Eze (5), Gyökeres (2).
Varamenn: Konsa (5), Julienne (6), Tzolis (7), Ödegaard (6).