Fotbolti.net
15.09.26 - 15:48
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Biðlar til Höskuldar að halda kyrru fyrir í Smáranum

Skoraði fyrra mark Breiðabliks í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á föstudag.

Skoraði fyrra mark Breiðabliks í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á föstudag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, hefur undanfarnar vikur verið orðaður við Val og taldar eru líkur á því að hann spili fyrir Val á næsta tímabili þrátt fyrir að vera með skráðan samning við Breiðablik út næsta tímabil.

Höskuldur er uppalinn hjá Breiðabliki og hefur einungis spilað með Breiðabliki og venslaliðinu Augnabliki á ferli sínum hér á landi. Hann var maður leiksins þegar Breiðablik vann Mjólkurbikarinn á föstudag; skoraði fyrra mark liðsins og átti mjög góðan leik.
Er Höskuldur á leið í Val?
TENGT EFNI

Er Höskuldur á leið í Val?

Freyr Snorrason er harður stuðningsmaður Breiðabliks og hann biðlar til Höskuldar um að halda kyrru fyrir í Smáranum í færslu á X í dag.

„Bikarmeistarar 2026, Blikahjartað stækkaði. Höggi steig upp og var algerlega frábær. Háværar sögusagnir höfðu verið um brottför hans til Dóra í Val. Sem ekkert geta. Það særði. Arfleifð Höskuldar er í húfi því grasið er alltaf grænna í Smáranum. Ekki skemma það, hættu við. Stay," skrifar Freyr.

Breiðablik er í 4. sæti Bestu deildarinnar og mun enda í 4.-6. sæti deildarinnar sem eru vonbrigði. Liðið spilar gegn Fram á útivelli í kvöld.

Samningur Höskuldar rennur út eftir næsta tímabil.

Samningur Höskuldar rennur út eftir næsta tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Freyr og Laufdal-bræður á góðri stundu.

Freyr og Laufdal-bræður á góðri stundu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.