Fotbolti.net
16.09.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Liðsfélagi Ísaks í fyrsta landsliðshópi Klopp

Said El Mala og Ísak Bergmann í leik með Köln

Said El Mala og Ísak Bergmann í leik með Köln

Canon

Mynd: EPA

Said El Mala, liðsfélagi Ísaks Bergmanns Jóhannessonar hjá Köln, verður í fyrsta landsliðshópi Jürgen Klopp hjá Þýskalandi, en þetta segir BILD.
Klopp tók við þýska landsliðinu eftir heimsmeistaramótið í sumar og mun á morgun tilkynna sinn fyrsta landsliðshóp.

BILD segir að Köln hafi þegar fengið skilaboð um að El Mala verði í hópnum. Þar fær hann tækifæri til að þreyta frumraun sína en Julian Nagelsmann valdi hann áður í landsliðshóp án þess að nota hann. El Mala var þá utan leikmannahóps í báðum leikjunum gegn Lúxemborg og Slóvakíu.

Nú er verið að ganga frá allri pappírsvinnu svo hann verði klár í slaginn fyrir Þjóðadeildina.

El Mala er tvítugur sóknarsinnaður leikmaður sem hefur staðið sig frábærlega með Köln og komið að nítján mörkum í 39 leikjum á tveimur tímabilum.

Hann gæti orðið fyrsti leikmaður Köln í sjö ár til að spila með þýska landsliðinu. Sá síðasti var fyrrum bakvörðurinn Jonas Hector.

Þjóðverjar mæta Grikklandi, Hollandi og Serbíu í leikjum sem fara fram í lok september og byrjun október.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.