Fotbolti.net
16.09.26 - 08:50
Elvar Geir Magnússon

Barcelona beinir kastljósinu að Kane og Haaland

Erling Haaland, sóknarmaður Manchester City.

Erling Haaland, sóknarmaður Manchester City.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Á hverjum degi lítum við inn í slúðurheima í boði Powerade. BBC tók saman það helsta sem er í umræðunni á þessum vætusama miðvikudegi.
Barcelona er að horfa til Harry Kane (33), framherja enska landsliðsins og Bayern München, og Erling Haaland (26) norska landsliðsmannsins hjá Manchester City. Félagið reyndi allt án árangurs til að fá Julian Alvarez (26) frá Atletico Madrid. (Talksport)

Nick Woltemade (24), framherji Newcastle sem nú er á láni hjá Juventus, hefur verið orðaður við Bayern München. (Talksport)

Manchester United hefur aftur augastað á Jarrad Branthwaite, (24), varnarmanni Everton og enska landsliðsins, eftir að hann sneri aftur til leiks eftir meiðsli. (Football Insider)

Enski kantmaðurinn Rio Ngumoha (18) er á radarnum hjá Arsenal en Liverpool vill framlengja langtímasamning hans. (Athletic)

Tottenham hefur enn áhuga á Morgan Gibbs-White (26), miðjumanni enska landsliðsins og Nottingham Forest, en félagið reyndi að fá hann sumarið 2025. Forest hefur ekki í hyggju að selja hann. (Teamtalk)

Endrick (20), framherji Real Madrid, gæti verið fáanlegur í janúarglugganum en Manchester United er á meðal félaga sem hafa áhuga á Brasilíumanninum. (AS)

Spænski miðjumaðurinn Rodri (30) ræddi við Jose Mourinho, stjóra Real Madrid, til að þakka honum fyrir áhugann og faglega framkomueftir að hafa valið að ganga til liðs við Barcelona í stað Real. (Mundo Deportivo)

Deco, íþróttastjóri Barcelona, átti fund með brasilíska landsliðsmanninum Raphinha (29) til að ræða um mögulega framlengingu á samning. Núgildandi samningur hans er til 2028. (Sport)

Klásúla AC Milan um að kaupa enska framherjann Omari Hutchinson (22), lánsmann frá Nottingham Forest, er um 42 milljónir punda. (Calciomercato)
Manchester United hefur enn áhuga á Jarrad Branthwaite.

Manchester United hefur enn áhuga á Jarrad Branthwaite.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.