Er töluvert nær Víkingum en KR

Óskar Hrafn og Dóri Árna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dóri gerði Blika að Íslandsmeisturum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dóri tekur við Val eftir tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Hrafn og Dóri Árna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikstíll Halldórs Árnasonar hefur oft verið tengdur við Óskar Hrafn Þorvaldsson enda störfuðu þeir saman í mörg ár hjá bæði Gróttu og Breiðabliki. Að sögn Bjarka Más Ólafssonar, sem vann með þeim hjá Gróttu, eru þó ákveðinn og áhugaverður munur á hugmyndafræði þeirra.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 1. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

„Hann talar mikið um orku og orkustig og hann leggur gífurlega mikla áherslu á ákefð og hraða í öllum fösum leiksins. Ég er sannfærður um að það verði mantran hjá honum að Valsliðið verði að keyra upp orkustigið sem hefur verið lágt á þessu tímabili," segir Bjarki um Halldór.
„Leikstíll Dóra með bolta er töluvert nær því sem við sjáum Víkinga gera frekar en það sem KR er að gera í dag sem lýsir kannski muninum á Óskari og Dóra. Liðin hans Óskars finna flæði sem erfitt er að skilgreina á taktík-töflu og þú finnur í rauninni fá lið í heiminum sem spila á svipaðan hátt á meðan liðin hans Dóra eru massív, mjög vel skipulögð, spila af hárri ákefð og gera það sem þarf til að vinna."
Eins og Bjarki nefnir er erfitt að finna lið í heiminum sem spila eins og KR-liðið hans Óskars Hrafns. Þó Halldór taki vissar áherslur frá Óskari eru þeir að mörgu leyti frábrugðnir í leikstíl.
„Í raun og veru er Óskar Hrafn að einhverju leyti listamaður þegar kemur að því að innleiða nýjar stefnur og hvernig hann horfir á fótboltann. Dóri var með honum og mér finnst eins og Dóri hafi haft rosalega sterk jafnvægisáhrif á Óskar. Þeir unnu vel saman," segir Bjarki.
„Dóri er pragmatískari og veit hvað þarf að gera til að vinna leiki, hann veit hvað þarf að gera til að ná árangri. Það sást þegar hann settist í stólinn hjá Breiðabliki að hann gerði nákvæmlega sem þurfti til að ná árangri. Þegar við horfum á leikstílinn og hvernig hann svipar til leikstíls Óskars, þá horfum við ákefðina. Þetta snýst mikið um hraða og pressu, að vera agressívir í sinni nálgun. En þegar kemur að því sem Dóri vill að liðin sín geri með boltann þá er hann ekki jafn djarfur og Óskar, en á sama tíma er fótboltinn hans mjög árangursríkur."
Arnór Sveinn Aðalsteinsson, fyrrum leikmaður og aðstoðarþjálfari Halldórs, segir Valsmönnum að spenna beltin. „Ég segi bara til hamingju við Valsara. Það verður gaman á vellinum. Ég mun fylgjast með þeim. Þetta verður orkumikill bolti, mikil pressa og mikil hlaup. Það verður sennilega fullt af mörkum. Spennið beltin," segir Arnór Sveinn.

TENGT EFNI
„Bravó Valur!" - Ástæður þess að Dóri Árna er ráðinn

Dóri gerði Blika að Íslandsmeisturum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dóri tekur við Val eftir tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð