Fotbolti.net
03.07.26 - 10:07
Elvar Geir Magnússon

Maður dagsins á HM - Ósýnilegi maðurinn

Mikel Oyarzabal.

Mikel Oyarzabal.

Canon

Mynd: EPA

Leikmaður dagsins
Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.

Stuðningsmenn í spænskum landsliðstreyjum á HM eru nánast allir með Lamine Yamal á bakinu. En það er þó ekki stærsta nafnið sem hefur skinið skærast í spænska liðinu á mótinu.
Sjáðu HM mörkin: Oyarzabal með tvö þegar Spánn flaug áfram
TENGT EFNI

Sjáðu HM mörkin: Oyarzabal með tvö þegar Spánn flaug áfram

Maður dagsins er Mikel Oyarzabal, 29 ára samherji og keppinautur Orra Steins Óskarssonar hjá Real Sociedad. Oyarzabal skoraði tvisvar í 3-0 sigri Spánar gegn Austurríki í 32-liða úrslitum. Hann fagnaði með því að setja boltann undir treyjuna, til heiðurs eiginkonu sinni sem er ólétt.

„Yamal er leikmaðurinn sem allir tala um. Oyarzabal er ósýnilegi maðurinn, hann hefur skorað í öllum úrslitaleikjum sem hann hefur spilað. Hann er einn sjallasti leikmaður Spánar og getur ráðið úrslitum," segir spænski sparkspekingurinn Guillem Balague.

Oyarzabal missti af HM 2022 vegna meiðsla en mætti á flugi inn í HM 2026. Hann hafði skorað tólf mörk í tólf síðustu landsleikjum fyrir mótið. Hann er komin með fjögur mörk á mótin og 17 mörk í 16 síðustu byrjunarliðsleikjum fyrir þjóð sína.

Hjá Real Sociedad er hann goðsögn enda er það eina félagið sem hann hefur spilað fyrir. Eitthvað sem er mjög sjaldgæft í nútímafótbolta.

Maður dagsins á HM - Ósýnilegi maðurinn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.