Fotbolti.net
23.07.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Haaland kemst ekki á topp tíu listann - „Það er enn langt í land“

Erling Haaland

Erling Haaland

Canon

Mynd: EPA

Erling Braut Haaland, framherji Manchester City og norska landsliðsins, kemst ekki á topp tíu listann hjá Troy Deeney yfir bestu framherja í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.
Haaland hefur verið langbesti framherji ensku úrvalsdeildarinnar undanfarin ár og unnið gullskóinn þrisvar sinnum.

Hann er þegar kominn í 25. sæti yfir markahæstu leikmenn í sögu deildarinnar með 112 mörk. Troy Deeney, sem lék sex tímabil með Watford í úrvalsdeildinni, telur markafjöldann þó ekki enn nægja Haaland til að komast á lista yfir tíu bestu framherja í sögu deildarinnar.

„Ekki enn, þótt allt sem hann hafi gert sé frábært. Þegar þessi umræða kemur upp er rétt að byrja á því að segja að hann er einhvers konar náttúrufyrirbæri. Það er samt enn langt í land.“

„Fjórir efstu hjá mér í augnablikinu eru Thierry Henry, Wayne Rooney, Alan Shearer og Andy Cole. Síðan breytist fimmta sætið stöðugt en þar koma Harry Kane, Jermain Defoe, Sergio Aguero, Robbie Fowler og Luis Suarez til greina.“

„Ég er með tíu leikmenn á listanum en Haaland er ekki kominn þangað enn.“

„Þetta snýst að mörgu leyti líka um tilfinninguna og hvernig þessir leikmenn létu manni líða þegar maður horfði á þá. Þegar maður sá Henry hugsaði maður bara: „Vá.“. Maður hafði aldrei áður séð jafn fljótan framherja sem gat auk þess alltaf klárað færin í hornið.“

„Rooney var einn besti leikmaður sem ég hafði séð þegar hann var kornungur. Hann gat gert allt. Shearer er síðan augljóslega þarna vegna allra markanna.“

„Cole er þó vanmetnasti framherji í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Hann er nánast aldrei á topp tíu listum annarra þrátt fyrir að hafa skorað yfir 180 mörk. Defoe gerði þetta í svo mörg ár og Aguero var ótrúlegur,“ sagði Deeney.

Hann er spenntur fyrir komandi tímabili og vill sjá Haaland taka enn meiri ábyrgð hjá Manchester City.

„Þetta verður áhugavert tímabil. Árin hans hjá Manchester City hafa verið ótrúleg og hann hefur átt stóran þátt í velgengni liðsins. Nú verður hins vegar áhugavert að sjá hvað gerist því City er ekki sigurstranglegasta liðið fyrir tímabilið. Getur hann borið liðið á herðum sér?“

„Ég vil sjá hann draga liðið áfram, eins og þegar hann mætti Arsenal og háði einvígi við Gabriel. Þá hugsaði ég bara: „Vá.“

„Hann dró liðið áfram til sigurs. Ég vil sjá meira af því,“ sagði Deeney.
Haaland er kominn með 112 deildarmörk

Haaland er kominn með 112 deildarmörk

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.