Fotbolti.net
23.07.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Fulham í viðræðum við Real Madrid

Fulham í viðræðum við Real Madrid
Canon

Mynd: EPA

Fulham er í viðræðum við Real Madrid um spænska framherjann Gonzalo Garcia. Þetta segir Mario Cortegana hjá Athletic.
Garcia er 22 ára framherji sem skaust fram á sjónarsviðið í fyrra þegar hann skoraði fjögur mörk á HM félagsliða og var einn af markahæstu mönnum mótsins.

Hann fékk þó ekki jafn stórt hlutverk eftir mótið og kom aðeins að átta mörkum með Real Madrid á nýliðnu tímabili.

Athletic segir Garcia líklegan til að yfirgefa Madrídinga í sumar og er Fulham talið fremst í kapphlaupinu um hann.

Nokkrir miðlar halda því fram að Jose Mourinho, nýr þjálfari Real Madrid, sé hrifinn af Garcia. Hann geti hins vegar ekki lofað framherjanum nægum spilatíma og hafi því lagt ákvörðunina um framtíðina í hendur hans.

Garcia er sagður opinn fyrir því að ganga til liðs við Fulham en lærifaðir hans, Alvaro Arbeloa, tók við enska félaginu í sumar eftir að hafa stýrt Real Madrid á síðari hluta síðasta tímabils.

Arbeloa þjálfaði Garcia áður hjá unglinga- og varaliðum Real Madrid og vill ólmur endurnýja kynnin við hann hjá Fulham.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.