Fotbolti.net
23.07.26 - 11:22
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Guardiola hafnar Ítalíu

Pep Guardiola.

Pep Guardiola.

Canon

Mynd: EPA

Ítalskir fjölmiðlar segja að Pep Guardiola hafi ákveðið að hafna tilboði um að taka við ítalska landsliðinu.

Ítalska fótboltasambandið var tilbúið að teygja sig langt fjárhagslega til að reyna að fá Guardiola en það dugði ekki til.

Guardiola er án starfs eftir að hafa sagt skilið við Manchester City eftir síðasta tímabil.
Ítalir teygja sig lengra til að sannfæra Guardiola
TENGT EFNI

Ítalir teygja sig lengra til að sannfæra Guardiola

Ítalía hefur verið í leit að nýjum þjálfara síðan Gennaro Gattuso hætti í apríl eftir að Ítalíu mistókst þriðja sinn í röð að komast á HM.

Guardiola fundaði með ítalska sambandinu en ætlar ekki að stökkva á tilboðið. Sagt er að honum hafi boðist 10 milljónir evra í árslaun en hafi leitast eftir tvöfalt hærri upphæð.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.