Fotbolti.net
23.07.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Þriðja tilboði Leeds hafnað

Þriðja tilboði Leeds hafnað
Canon

Mynd: EPA

Southampton hefur hafnað þriðja tilboði Leeds United í miðjumanninn Shea Charles. Þetta kemur fram á Sky Sports.
Leeds hefur átt í viðræðum við Southampton um kaup á hinum 22 ára Charles síðan í síðasta mánuði.

Viðræðurnar virðast komnar í hnút en Southampton hefur nú hafnað þriðja tilboði Leeds í leikmanninn.

Leeds ætlar að láta síðasta tilboðið standa en hyggst ekki hækka það. Eins og staðan er núna gæti félagið því þurft að horfa annað í leit að liðsstyrk.

Crystal Palace og Fulham hafa einnig sýnt norður-írska landsliðsmanninum áhuga í sumar en Leeds er eina félagið sem hefur lagt fram formlegt tilboð.

Miðjumaðurinn spilaði 38 leiki fyrir Southampton á síðustu leiktíð og kom að átta mörkum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.