23.07.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Zidane kynntur á þriðjudag

Zinedine Zidane er að taka við Frökkum

Mynd: EPA

Zinedine Zidane er að taka við Frökkum

Mynd: EPA
Franska fótboltasambandið mun kynna Zinedine Zidane til leiks sem nýjan landsliðsþjálfara Frakklands á þriðjudag.
Didier Deschamps stýrði franska landsliðinu í síðasta sinn þegar liðið tapaði 6-4 fyrir Englandi í bronsleik HM á dögunum.
Löngu hafði verið ákveðið að Deschamps myndi láta af störfum eftir mótið. Hann stýrði Frökkum í fjórtán ár, gerði þá að heimsmeisturum og kom þeim tvisvar í úrslit á HM og einu sinni á EM. Þá vann Frakkland Þjóðadeildina undir hans stjórn árið 2021.
Það er líklega verst geymda leyndarmál fótboltans að Zidane taki við af Deschamps. Ráðningin hefur legið í loftinu árum saman en Zidane mun skrifa undir fjögurra ára samning sem gildir út HM 2030.
L'Equipe segir styttast í að Zidane verði kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Frakklands en það verður gert á þriðjudag.
Þetta verður fyrsta landsliðsþjálfarastarf hans. Zidane hefur tvisvar stýrt Real Madrid og unnið samtals ellefu titla með félaginu, þar á meðal Meistaradeildina þrjú ár í röð.
Leikmannaferil Zidane þarf vart að kynna. Hann fór á kostum með Bordeaux, Juventus og Real Madrid, vann fjölda titla og varð bæði heims- og Evrópumeistari með Frakklandi.
Zidane lék 108 landsleiki og skoraði 31 mark. Ferill hans endaði með afar dramatískum hætti í úrslitaleik HM 2006 þegar hann fékk rautt spjald fyrir að skalla Marco Materazzi í bringuna, en Frakkar enduðu á að tapa þeim leik eftir vítakeppni.