Fotbolti.net
23.07.26 - 09:45
Kári Snorrason

Liverpool telur sig leiða baráttuna um Barcola - Arsenal hlustar á tilboð í Ödegaard

Kom að fjórum mörkum á HM.

Kom að fjórum mörkum á HM.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Liverpool heldur áfram að reyna við Barcola, Ödegaard er falur fyrir rétt verð og lið berjast um Alex Scott. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins.
Liverpool telur sig leiða baráttuna gegn Arsenal og Bayern í baráttunni um franska sóknarmanninn Bradley Barcola (23), leikmanni PSG. (The Sun)

Arsenal er komið í forystu í baráttunni við Man Utd um miðjumanninn Alex Scott (22), leikmann Bournemouth. Scott hefur þó áhyggjur af því hversu mikið hann myndi spila á Emirates. (Daily Mirror)

Hann (22) vill helst ganga til liðs við Chelsea en Bournemouth hafnaði 64 milljóna punda tilboði frá félaginu. (The Standard)

Bruno Fernandes (31) hefur ákveðið að skuldbinda framtíð sína Man Utd en viðræður um nýjan samning standa yfir. (Daily Express)

Besiktas reynir að fá enska miðjumanninn Joe Willock (26), sem er á síðasta ári samnings síns hjá Newcastle og fær ekki nýjan samning. (The Telegraph)

Arsenal útilokar ekki að selja fyrirliðann Martin Ödegaard (27) og er reiðubúið að hlusta á tilboð í norska miðjumanninn. (TeamTalk)

Man Utd skoðar möguleikann á að fá miðjumanninn Eduardo Camavinga (23) frá Real Madrid, en hann var ekki í HM-hópi Frakka í sumar. (Nicolo Schira)

Roma hefur kannað hvort mögulegt sé að fá miðvörðinn Axel Disasi (28) frá Chelsea. Chelsea vill fá um 17 milljónir punda fyrir Frakkann. (Footmercato)

Fulham hefur hafið viðræður við Real Madrid um möguleg kaup á spænska framherjanum Gonzalo Garcia (22). (The Athletic)
Scott er eftirsóttur.

Scott er eftirsóttur.

Canon

Mynd: EPA

Arsenal hlustar á tilboð í Ödegaard.

Arsenal hlustar á tilboð í Ödegaard.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.