Fotbolti.net
23.07.26 - 09:48
Elvar Geir Magnússon

Rodri gæti þurft að gangast undir aðgerð

Rodri á við bakmeiðsli að stríða og gæti verið frá í töluverðan tíma.

Rodri á við bakmeiðsli að stríða og gæti verið frá í töluverðan tíma.

Canon

Mynd: EPA

Spænski landsliðsfyrirliðinn Rodri, leikmaður Manchester City, verður frá í einhvern tíma vegna bakmeiðsla. Mögulega þarf hann að gangast undir aðgerð.

Rodri lék frábærlega með Spánverjum á HM og var valinn maður mótsins eftir að Spánn vann Argentínu í úrslitaleiknum.
Rodri bestur á HM - Cubarsi besti ungi leikmaðurinn
TENGT EFNI

Rodri bestur á HM - Cubarsi besti ungi leikmaðurinn

Hann mun hinsvegar missa af byrjun nýs tímabils hjá City vegna bakmeiðsla.

Hann hefur glímt við mikil meiðslavandræði síðan hann sleit krossbönd í 2-2 jafntefli gegn Arsenal í september 2024. Hann var frá út það tímabil og meiddist svo aftur á HM félagsliða í júlí 2025. Meiðsli aftan í læri og nárameiðsli voru að hrjá hann á síðasta tímabili og hann byrjaði aðeins 17 úrvalsdeildarleiki.

Framtíð Rodri hjá City er í óvissu, samningur hans rennur út í júní á næsta ári. Fjölmiðlar halda því fram að hann vilji ganga í raðir Real Madrid.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.