Fotbolti.net
23.07.26 - 09:30
Elvar Geir Magnússon

Kulusevski og Kudus ekki með Tottenham í æfingaferðinni

Mohammed Kudus.

Mohammed Kudus.

Canon

Mynd: EPA

Hvorki Dejan Kulusevski né Mohammed Kudus eru í 35 manna hópi Tottenham sem fer í æfingaferð til Nýja-Sjálands og Ástralíu þar sem spilaðir verða þrír leikir.

Kulusevski og Kudus hafa verið að glíma við langtímameiðsli og eru greinilega ekki enn orðnir góðir af þeim.
Fernandes með draumamark í fyrsta leik - Andri byrjaði í tapi gegn Forest
TENGT EFNI

Fernandes með draumamark í fyrsta leik - Andri byrjaði í tapi gegn Forest

Vonir stóðu til að Kudus væri nálægt endurkomu en hann hefur sést í líkamsræktarsalnum á æfingasvæði Tottenham. Hann hefur ekki spilað síðan hann meiddist gegn Sunderland í janúar.

Kulusevski hefur ekki spilað fyrir Tottenham í fjórtán mánuði vegna alvarlegra hnémeiðsla.

Wilson Odobert og Xavi Simons eru einnig á meiðslalistanum og fara ekki með í ferðina. Það eru enn mánuðir í þeir komist í fullt form eftir aðgerðir á krossböndum í hné. Þá varð Guglielmo Vicario markvörður fyrir minniháttar meiðslum og fer ekki með.

Nýju leikmennirnir Sandro Tonali, Mateus Fernandes, Andy Robertson, Jan Paul van Hecke og Martin Dubravka eru hinsvegar allir í hópnum hjá Roberto De Zerbi.
Kulusevski og Kudus ekki með Tottenham í æfingaferðinni
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.