Fotbolti.net
23.07.26 - 10:48
Elvar Geir Magnússon

Madonna þótti best í hálfleikssýningunni en Bieber vonbrigði

Ronaldinho, Madonna og Ronaldo í miklu stuði.

Ronaldinho, Madonna og Ronaldo í miklu stuði.

Canon

Mynd: EPA

Hálfleikssýningin á úrslitaleik heimsmeistaramótsins síðasta sunnudagskvöld hlaut mikið umtal en hálfleikurinn í leiknum stóð yfir í meira en 27 mínútur vegna sýningarinnar.

Sjálf sýningin var í rúmlega ellefu mínútur og var skipt í nokkra kafla þar sem heimsfrægir tónlistarmenn og fleiri frægir einstaklingar komu við sögu.

Sýningin féll í grýttan jarðveg hjá fótboltaáhugafólki hér á landi en samkvæmt skoðanakönnun sem er á forsíðunni segja 73% lesenda Fótbolta.net að þeir hafi ekki notið sýningarinnar og vilja ekki sjá svona í miðjum fótboltaleik. Aðeins 13% voru ánægðir með sýninguna.
Rooney ekki hrifinn af hálfleikssýningunni - „Þetta var drasl"
TENGT EFNI

Rooney ekki hrifinn af hálfleikssýningunni - „Þetta var drasl"

ESPN ákvað að dæma alla hluta hálfleikssýningarinnar og samkvæmt sérfræðingum síðunnar var Madonna í fararbroddi. Sýningin hófst á því að hún keyrði inn á völlinn með brasilísku goðsögnunum Ronaldo og Ronaldinho.

Þessi hluti sýningarinnar fær 9 af 10 mögulegum frá ESPN. Suður-Kóreska poppbandið BTS fylgdi á eftir Madonnu og fær 8 í einkunn. Justin Bieber þótti hinsvegar vonbrigði og fær 6

Hér er hægt að horfa á hálfleikssýninguna
BTS.

BTS.

Canon

Mynd: EPA

Madonna þótti best í hálfleikssýningunni en Bieber vonbrigði
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.