Fotbolti.net
03.08.05 - 06:37
Hafliði Breiðfjörð

Hobbs til Liverpool (Staðfest)

Hobbs til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Rafael Benítez stjóri Liverpool gekk í gær frá sjöundu kaupum sínum í sumar er gerður var forveri samnings við ungstirnið Jack Hobbs. Hobbs er aðeins 16 ára gamall en hann kemur frá Lincoln City. Hann mun skrifa undir samning hjá Evrópumeisturunum daginn sem hann verður 17 ára, 18. ágúst næstkomandi.
Arsenal höfðu verið sterklega orðaðir við Hobbs áður en Benítez skarst í leikinn. Hobbs kom fyrst til Liverpool á reynslu og heillaði svo mikið að Benítez ákvað að kaupa hann.

Hluti samningsins við félagið mun vera að Liverpool leikur gegn Lincoln City í æfingaleik á Sincil Bank sumarið 2006. Hobbs gekk í raðir Lincoln í janúar 2005 og lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.