Fotbolti.net
03.08.05 - 01:31
Hafliði Breiðfjörð

Edgar Davids til Tottenham (Staðfest)

Edgar Davids til Tottenham (Staðfest)
Canon
Tottenham Hotspurs tilkynntu nú í nótt á vefsíðu sinni að Hollendingurinn Edgar Davids væri genginn til félagsins á frjálsri sölu frá Inter Milan. Davids hefur gengið frá samningum við félagið og verður í leikmannahópnum sem mætir Porto í æfingaleik á White Hart Lane á laugardag.
Martin Jol stjóri félagsins sagði: ,,Ég veit að allir eru mjög spenntir, hann er stór leikmaður og sá sem við vildum. Edgar Davids er líklega einn af farsælustu leikmönnum síðasta áratugar, hann hefur spilað með fimm af stærstu félögum Evrópu og vill spila fyrir Spurs"

,,Allir okkar leikmenn eru metnaðargjarnir og þið vitið afhverju við höfum fengið Edgar inn, því bæði andlega og líkamlega verðum við að fara skref eða tvö fram á við."


Davids á að baki 73 landsleiki fyrir Holland og hefur leikið á fjórum stórmótum með hollenska landsliðinu. Auk þess hefur hann fjórum sinnum leikið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem hann vann árið 1995 með Ajax.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.