03.08.06 - 07:43
Hafliði Breiðfjörð
Marco Di Vaio til Monaco (Staðfest)

Marco Di Vaio í baráttu við Birki Kristinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Ítalski framherjinn Marco Di Vaio gekk í gær í raðir Monaco sem leikur í frönsku deildinni en þangað kemur hann frá Valencia á Spáni þar sem hann var samningsbundin.
Di Vaio gerði tveggja ára samning við Monaco en hann lék með þeim á síðari hluta síðustu leiktíðar á láni frá Valencia.
Þessi fyrrum framherji Juventus sem átti ekki sæti í HM hópi ítalska landsliðsins skoraði fimm mörk í 15 leikjum í spænsku deildinni.
Hann var í leikmannahópi Ítalíu sem mætti Íslandi í æfingaleik á Laugardalsvelli í ágúst 2004 en aldrei hafa fleiri áhorfendur mætt á fótboltaleik hér á landi en einmitt þá.