Fotbolti.net
03.08.07 - 10:54
Hafliði Breiðfjörð

Bojinov til Manchester City (Staðfest)

Bojinov til Manchester City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hafa gengið frá kaupum á Valeri Bojinov framherja Fiorentina en þessi hæfileikaríki Búlgari var á síðustu leiktíð á láni hjá Juventus sem lék í Serie B. Hann gerir fjögurra ára samning við Man City að því gefnu að hann fái atvinnuleyfi en hann hefur undirgengist læknisskoðun.
Bojinov verður fjórðu kaup City á tveimur dögum og ekkert bendir til þess að Sven Göran Eriksson þjálfari liðsins hafi lagt tékkheftið til hliðar ennþá því búist er við enn fleiri leikmönnum áður en félagaskiptaglugginn lokar.

,,Kaup okkar á Valeri eru annað merki um áhrifin sem Dr Thaksin og Sven Göran ERiksson hafa haft á liðið," sagði á vefsíðu City. ,,Valeri er spennandi ungur leikmaður sem er frábær viðbót við hópinn."

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.