Fotbolti.net
03.08.07 - 11:18
Hafliði Breiðfjörð

Braaten til Bolton (Staðfest)

Sammy Lee.

Sammy Lee.

Canon

Mynd: Getty Images

Norski kantmaðurinn Daniel Braaten hefur skrifað undir þriggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Bolton Wanderers en hann kemur frá Rosenborg og kaupverð er ekki gefið upp.
Braaten sem er 25 ára gamall hefur reynslu í Meistaradeild Evrópu með Rosenborg og Sammy Lee stjóri Bolton telur að Norðmaðurinn muni gefa liðinu nýja vídd.

,,Daniel er önnur gæðakaup. Ég er ánægður með að hann hafi valið Bolton framyfir önnur félög," sagði Lee. ,,Hann er kraftmikill kantmaður sem getur spilað á báðum köntum."

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.