03.08.07 - 12:47
Hafliði Breiðfjörð
Alan Smith til Newcastle United (Staðfest)

Alan Smith er hér hægra megin á myndinni.

Mynd: Getty Images

Alan Smith er hér hægra megin á myndinni.

Mynd: Getty Images
Newcastle United hafa gengið frá kaupum á Alan Smith framherja Manchester United en kaupverðið er 6 milljónir punda. Smith sem er 26 ára gamall gerði fimm ára samning við félagið og æfði með sínu nýja liði í dag.
Mörg félög höfðu verið á eftir undirskrift hans þegar ljóst var að hann færi frá Manchester United sem tilkynnti honum að hann fengi ekki nýjan samning á Old Trafford.
Sam Allardyce stjóri Newcastle mun einnig vera á höttunum eftir Leighton Baines varnarmanni Wigan.
Þá er brasilíski varnarmaðurinn Capaca sem er 31 árs gamall í læknisskoðun hjá Newcastle þessa stundina en þessi miðvörður var fyrirliði Lyon síðustu fimm ár en Lyon vann titilinn öll árin.

Heimild: BBC