Fotbolti.net
03.08.07 - 12:53
Hafliði Breiðfjörð

Franck Queudrue til Birmingham (Staðfest)

Franck Queudrue til Birmingham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham hafa gengið frá kaupum á Franck Queudrue varnarmanni Fulham en samningurinn gæti að lokum orðið 2,5 milljón punda virði. Queudrue sem er 28 ára gamall hefur skrifað undir þriggja ára samning hjá Birmingham.
Steve Bruce stjóri Birmingham ætlar að reyna að ganga einnig frá kaupum á Liam Ridgewell varnarmanni Aston Villa en kaupverðið þar er einnig 2,5 milljónir punda.

Hann fer í læknisskoðun hjá félaginu í dag og verður fyrsti leikmaðurinn í áratug til að fara á milli þessara nágrannaliða.

Birmingham höfðu boðið 2 milljónir punda í Ridgewell í janúar en þvi var hafnað og þeir náðu ekki heldur að fá hann á láni áður en félagaskiptaglugginn lokaði.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.