Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 03. ágúst 2022 20:45
Ívan Guðjón Baldursson
Chelsea verður með endurkaupsrétt á Colwill
Colwill er byrjaður að spila fyrir U21 landslið Englendinga þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára.
Colwill er byrjaður að spila fyrir U21 landslið Englendinga þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára.
Mynd: Youtube

Eins og greint var frá fyrr í kvöld er Marc Cucurella, vinstri bakvörður Brighton, á leið til Chelsea fyrir 52,5 milljónir punda.


Cucurella skrifar undir sex ára samning við Chelsea en hinn bráðefnilegi Levi Colwill fer hina leiðina og skrifar undir samning við Brighton.

Colwill er 19 ára miðvörður sem var í mikilvægu hlutverki á lánssamningi hjá Huddersfield á síðustu leiktíð. Mörg félög vildu fá hann á láni í sumar en Brighton virðist vera að kaupa hann.

Kaupverðið er óuppgefið en Fabrizio Romano greinir frá því að Chelsea hefði ekki samþykkt að selja Colwill án þess að hafa endurkaupsrétt á leikmanninum.

Chelsea mun því geta keypt Colwill aftur til sín í framtíðinni fyrir fyrirfram ákveðna upphæð.


Athugasemdir
banner
banner